http://www.youtube.com/watch?v=89oS4SN4mNg
Veit ekki af hverju en mér finnst endilega eins og ég eigi að blogga..
Fyrst ætla ég bara að segja ykkur að ég er enn á lífi þrátt fyrir dapurleg skrif hérna inná seinustu vikur.. En þar sem lítið er í gangi hjá mér þessa daganna annað en vinna, svefn (og það alltof lítið af honum) and heartache þá hef ég eiginlega barasta ekkert til þess að tala um.. Þannig að ég ætla að tala um eitthvað annað en mig 
Ætla að byrja á Gísla.. Greyið á ekki sjö daganna sæla um þessar mundir.. Fyrir nokkrum mánuðum kviknaði vélarljós í mælaborðinu á bílnum hans... Í ljósi þess að það kviknar þarna ljós daglega (hann Gísli er frekar latur við að fara á bensínstöðvar) þá kippti hann sér ekki mikið upp við það þótt það kviknaði eitt ljós í viðbót.. Þannig að hann hélt bara áfram að keyra bílinn líkt og ekkert hefði kviknað.. Þangað til í gær að eitthvað fór loks að gerast.. Eins og þið kannski flest vitið þá hefur óveður gengið yfir landið seinustu daga, og var því hevý mikil rigning seinnipartinn í gær. Bíllinn hans Gísla stóð hinsvegar á sínum stað á bílastæði leigumarkaðs byko og beið eftir því að klukkan yrði sjö svo hann Gísli gæti farið heim til sín.. Sigrún, að því að hún er svo yndisleg og auðvitað mikill tækifærissinni, bauðst til þess að fara út og færa bílinn hans Gísla niður fyrir hús, þannig gæti Gísli auðvitað sest beint inn í bíl og auðvitað líka skutlað Sigrúnu að sínum bíl sem var töluvert ofar á bílastæðinu í þessu fína veðri.. Þannig að ég fæ lyklana, hleyp út en tek eftir því þegar ég er að opna bílinn að glugginn bílstjórameginn er opinn
Hugsa svosem ekkert meira um það en sest inn í bílinn og beint í poll
Það voru allir gluggarnir opnir


Leist minni nú ekki á blikuna og sendi eftir eigandanum... Skiljanlega varð hann ekki ánægður með þetta en sá það hinsvegar loksins að það væri kannski kominn tími á að láta kíkja á þetta óvelkomna ljós í mælaborðinu.. Eyddi síðan nóttinni í það að þurrka bílinn. Ég varð hinsvegar bara blaut á rassinum.. Ekkert meira um það að segja..
In other news, Gísli er á leiðinni í skóla, og því mun Sigrún deyja úr leiðindum eftir áramót.. Þeir sem vilja er því hér með boðið í jarðarför í kringum miðjan febrúar. Verður hún haldin í Dalvíkurkirkju en minningarathöfn verður haldin um kvöldið í Skíðaskálanum í Hveradölum fyrir þá sem ekki nenna norður. Thanks for not coming, lofa að ganga ekki aftur 
Jólaundirbúningurinn er í fullum gangi, pakkarnir fljúga hægri vinstri, litlar systur fara óvart á leynda staði þar sem pakkarnir þeirra eru faldir og mömmu eru forvitnar en fá ekkert að vita og fara því bara að baka í staðinn og þrífa teppin í stofunni með teppahreinsivél úr LM Byko.
það er furðulegur maður í sjónvarpinu, varð bara að koma þessu á framfæri..
Hafrún er að flýja land eftir 2 vikur.. Það verður skrítið að sjá hana fara.. Hvern á ég að bögga???
Það er ennþá furðulegur maður í sjónvarpinu! Ég held ég slökkvi bara á þessu.. Innlit/útlit only went downhill eftir að Vala Jáváennflott Matt hætti með hann.. Eins og þetta var nú mikill skítaþáttur fyrir
Held að þetta sé tekið upp í leikmunageymslu Þjóðleikhússins....
Ég fæ jólapakka á morgun
Ætla ekki að segja hvað ég fæ eða frá hverjum og þeir sem það vita mega alls ekki kommenta um það hérna!! It's a secret and I don't wanna know untill tomorrow
segi ykkur kannski hvað ég fæ 
Er að vinna alla daga fram að jólum og fæ síðan fáránlega langt frí milli jóla og nýárs og þarf síðan ekki að mæta í vinnu fyrr en 2 janúar
sweeeet 
og já, got nothin more to say, eins og ég sagði í byrjum þessarar færslu þá er lítið í gangi hjá mér þessa daganna....
Peace out
Sigrún B. Elíasdóttir Spears
(p.s. hvað hefði getað skemmt fyrir mér jólin? I'll give you a hint... Söngkona sem ég hata sem er að gefa út sólóplötu.. Who am I talking about?? KOMMENT!!)